Fréttatilkynning úr Morgunblaðinu 1. nóvember 1980:
Erfðaskrá Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar:
„Gjöf aldarinnar ef ekki allra alda — segja skiptaforstjórarnir
Skiptaforstjórarnir i dánarbúi Helgu Jónsdóttur og Sigurlíða Kristjánssonar sendu i gær frá sér eftirfarandi fréttatilkynn- Ingu:
Hinn 8. nóvember 1972 lést í Reykjavík Sigurliði kaupmaður Kristjánsson, annar eigandi fyrirtækisins Silla og Valda. Eiginkona Sigurliða var Helga Jónsdóttir. Hún lést 3. júní 1978. Þau hjón voru barnlaus er þau féllu frá og því ekki um skylduerfingja að ræða. Hjónin höfðu gert gagnkvæma og sameiginlega erfðaskrá þar sem kveðið var á, að það þeirra, er síðar félli frá skyldi erfa það sem fyrr félli frá að öllum eignum þess, föstum og lausum hverju nafni sem nefnast. Samkvæmt þessu varð Helga einkaerfingi Sigurliða. í erfðaskránni var einnig kveðið á um það, hvernig fara skyldi um eignir þeirra eftir andlát þess, sem síðar félli frá. Þorri eignanna var bundinn í fyrirtækinu Silli og Valdi, en Sigurliði hafði átt helming í því fyrirtæki. Var það vilji þeirra hjóna að nettóandvirði eignarhluta þeirra í Silla og Valda skyldi varið til menningarmála á sviði leiklistar, málaralistar, sönglistar og raunvísinda, með beinum fjárframlögum til leikhúsbyggingar, óperuhúsbyggingar í Reykjavík, listasafnsbyggingar, styrkjum til efnalítilla stúdenta með góða námshæfileika, er einkum leggja stund á raunvísindanám og til stuðnings nýjungum í læknisfræði, sérstaklega á sviði heila- og hjartaskurðaðgerða, auknlækninga og öldrunarsjúkdóma. Í samræmi við þetta var ákveðið, að 25% af nettóandvirði eignarhluta þeirra hjóna í Silla og Valda skyldi renna til Listasafns Íslands, sem stendur nú í því að byggja yfir safnið og önnur 25% renni til íslensku óperunnar, og skuli öllu framlaginu varið til að koma upp söngleikahúsi til flutnings á óperuverkum. Ennfremur að 25% gangi til Leikfélags Reykjavíkur, enda renni allt féð sem framlag Leikfélags Reykjavíkur til byggingar leikhúss, en svo sem kunnugt er hafa Leikfélag Reykjavíkur og Reykjavíkurborg hafið byggingu leikhúss í Kringlumýri í Reykjavík. Þau 25% sem eftir eru ganga til tveggja sjóða, sem þegar hafa verið stofnaðir og skipulagsskrá þeirra hlotið staðfestingu forseta Íslands. Fær hvor sjóður 12,5%. Sjóðirnir heita Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar til styrktar stúdentum í raunvísindanámi og Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar til stuðnings nýjungum í læknisfræði.
Fyrirtækinu Silla og Valda var skipt á milli eigenda 1977, þeirra Valdimars Þórðarsonar og Helgu Jónsdóttur. Í hlut Helgu komu se fasteignir í Reykjavík, meðal annars 97,1% í Álfheimum 74 (Glæsibær) og Laugavegur 82. Samanlagt fasteignamat þessara sex fasteigna (húsverð og lóðarverð) nemur kr. 2.204.696.599, miðað við fasteignamatið 1/12 1979. Samanlagt brunabótaverð húsanna nemur kr. 3.561.093.000. Auk þessara eigna ákváðu þau hjón, að Ríkissjóður íslands skyldi fá ibúðarhús þeirra hjóna, Laufásveg 72, Reykjavík. Þá ráðstöfuðu þau hjón eignarjörð sinni, Ásgarði, Grímsneshreppi, Arnessýslu, til þriggja aðila, Hjartaverndar, Reykjavíkurborgar og Skógræktar Ríkisins. Var það vilji þeirra hjóna að landsvæði Hjartaverndar yrði notað sem hvíldar- og hressingarstaður. Landið liggur meðfram Alftavatni og Sogi og fær Hjartavernd öll veiðiréttindi fyrir sínu landi. Einnig fékk Hjartavernd sumarhús þeirra hjóna, sem er á þessu landi. Land Hjartaverndar er um 80 hektarar. Það var vilji hjónanna, að á landi Reykjavíkurborgar rísi sumardvalarheimili fyrir drengi á aldrinum 6 -14 ára og sé unglingunum ætlað að hlúa að gróðri landsins, svo sem með trjárækt og hvers kyns annarri ræktun. Land þetta er um 50 hektarar. Land þetta liggur meðfram Sogi og Ásgarðsá og fær Reykjavíkurborg veiðiréttindi fyrir sínu landi. Annað land jarðarinnar, um 600 hektarar, á að renna til Skógræktar ríkisins, með þeirri kvöð að á landi jarðarinnar fari fram skógrækt. Skógrækt rikisins fær veiðiréttindi fyrir sínu landi. Vegna ákvæða um forkaupsrétt í III. kafla jarðalaga nr. 65/1976 varð að gefa hreppsnefnd Grímsneshrepps kost á að neyta forkaupsréttar að jörðinni. Hefir hreppsnefndin æskt mats hjá matsnefnd eignarnámsbóta og er úrskurðar matsnefndar að vænta innan tíðar. Það er því enn háð óvissu hvort framangreindir gjafþegar fá að njóta Ásgarðsgjafar. Ekki er ástæða til að greina frá ákvæðum erfðaskrár þeirra hjóna að öðru leyti, enda gerð grein fyrir öllum meginþáttum erfðaskrárinnar með þessari fréttatilkynningu.
Svo sem ljóst má vera af framangreindri skýrslu um eigur þeirra hjóna voru þau stórauðug, er þau féllu frá. Trúlega er hér um að ræða gjöf aldarinnar, ef ekki allra alda. Jafnframt því sem gjöfin speglar fágæta rausn þeirra hjóna varpar hún einnig ljósi á áhugamál þeirra. Áhugasviðið var vítt: Leiklist, málaralist, sönglist, skógrækt og mannrækt. Þess má geta, að í dánarbúinu reyndust vera tæplega 270 oliumálverk eftir Sigurliða, sem sýnir hvílíkur elju og afkastamaður hann var.
Sigurliði Kristjánsson var fæddur í Reykjavík 17.6. 1901 og Helga Jónsdóttir 22.10. 1901 á Jökulsá í Borgarfirði eystra. Fréttatilkynning þessi er gefin vegna fyrirspurna fjölmiðla að undanförnu um ráðstöfun þeirra hjóna á eigum sínum.
Reykjavík, 31.10.1980.
Skiptaforstjórarnir í dánarbúi Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar.
Jóhann Hinrik Nielsson hrl.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
Sveinn Snorrason hrl.